June 30th, 2009
Í kvöld við kveðja munum þann bæ
Sem hverfur brátt vonandi í sæ
Ef um það að ráða ég fæ.
Hér vagga mín er
En gröf minni vel
Ég mér annan mel.
Fjölmargir reynt hafa við þessa leið
En brekkan er hál, brött og beygð
Og komast þeir aldrei á skeið.
En við getum allt
Og með mér þú skalt
Lifa þúsundfalt.
Langt kemst ég aldrei aðstoðarlaust
Því bið ég um hönd þína og traust.
Við yfirgefum þetta naust.
Sestu upp í minn bíl
Kveðjum þennan skríl
Og breytum um stíl.
Ég er á leiðinni
Það verður að gerast í kvöld
Ég er á leiðinni
Það verður að gerast í kvöld
Það verður að gerast í kvöld
Við verðum að gera þetta í kvöld
Í morgunroðanum munum við
Fá laun fyrir alla okkar bið
Er líf okkar loks fer á skrið
Og við fáum bætt
Allt sem okkar ætt
Hefur frá okkur rænt
Í kvöld við kveðjum heimilisskaut
Og hverfum á blánýja braut
Og sigrumst á þessari þraut
Og þá muntu sjá að þú engum ert háð
Nema þinni þrá.
Ég er á leiðinni
Það verður að gerast í kvöld
Ég er á leiðinni
Við verðum að gera þetta í kvöld
Við verðum að gera þetta í kvöld
Við verðum að gera þetta í kvöld
Öðlast aftur okkar völd
Því við eigum þessa öld. |
G, C, Am
Em, Am
D, G
G7, C
Am, Em,
D, G |
Í kvöld við kveðja munum þann bæ
Posted in Lög og textar | No Comments »